Hér að neðan má sjá lista yfir öll lög Oddgeirs Kristjánssonar til æviloka, hvenær þau voru samin ásamt því hver samdi ljóðið.

 

1930    Rauðir hundar. Ljóð Árni úr Eyjum.

1931    Ship ohoj. Ljóð Loftur Guðmundsson.

1933-1934    Góða nótt. Ljóð Árni úr Eyjum og Ási í Bæ.

1933    Setjumst að sumbli (Fyrsta þjóðhátíðarlagið). Ljóð Árni úr Eyjum.

1933    Týsmarsinn. Ljóð Árni úr Eyjum.

1935    Við svífum áfram. Ljóð Sigurbjörn Sveinsson.

1935    Glóðir. Ljóð Loftur Guðmundsson.

1936    Blái borðinn (þjóðhátíðarlag). Ljóð Árni úr Eyjum.

1936    Fyrir austan mána. Ljóð Loftur Guðmundsson.

1936    Næturlögreglan. Ljóð Árni úr Eyjum.

1936    Gamanvísa (Akóges). Ljóð Árni úr Eyjum.

1937    Ágústnótt (þjóðhátíðarlag). Ljóð Árni úr Eyjum.

1937    Vetrarnótt. Ljóð Árni úr Eyjum.

1937    Akógesvísa (Húskantata). Ljóð Árni úr Eyjum.

1938    Þjóðhátíðarsöngur (þjóðhátíðarlag). Ljóð Árni úr Eyjum.

1938    Tangó. Enginn texti til.

1938    Söknuður. Ljóð Árni úr Eyjum.

1939    Hátíðarnótt í Herjólfsdal (þjóðhátíðarlag). Ljóð Árni úr Eyjum.

1939    Akógesvísa (Akóges er okkar skjól). Ljóð Árni úr Eyjum.

1940    Meira fjör (þjóðhátíðarlag). Ljóð Árni úr Eyjum.

(Einnig ljóðin "Sigling”=Blítt og létt" og "Kveikjum eld" eftir Árna úr Eyjum).

1940    Vor við sæinn. Ljóð Árni úr Eyjum.

1940    Vikivaki. Ljóð LofturGuðmundsson.

1940    Akógesljóð. Ljóð Árni úr Eyjum.

1941    Dagur og nótt í dalnum (þjóðhátíðarlag). Ljóð Árni úr Eyjum.

1941    Mansöngur. Ljóð Loftur Guðmundsson.

1942    Takið eftir því (þjóðhátíðarlag). Ljóð Árni úr Eyjum.

1941-1942    Báran. Ljóð Jóhann Sigurjónsson.

1942    Haustnótt. Ljóð Tómas Guðmundsson.

1942    Svo björt og skær. Ljóð Loftur Guðmundsson (Notað sem  þjóðhátíðarlag 1968)

1945    Á útlagaslóðum (þjóðhátíðarlag) (Heitir “Söngur SÍBS” í nótnahefti OK)

Ljóð Árni úr Eyjum.

1947    Sjómannasöngur. Ljóð Steingrímur Thorsteinsson.

1948    Ég veit einn ástvin. Ljóð Guðríður S. Þóroddsdóttir.

1948    Þjóðhátíðarvísa 1948 (Þegar kvöldið kátt - þjóðhátíðarlag). Ljóð Ási í Bæ

1949    Breytileg átt og hægviðri (þjóðhátíðarlag). Ljóð Árni úr Eyjum.

1950    Hve dátt er hér í dalnum (þjóðhátíðarlag). Ljóð Ási í Bæ (Heitir nú Vorvísa ljóð Ási í Bæ).

1951    Heima (þjóðhátíðarlag). Ljóð Ási í Bæ

1953    Síldarstúlkurnar (þjóðhátíðarlag). Ljóð Ási í Bæ

1954    Vísan um dægurlagið (þjóðhátíðarlag). Ljóð Sigurður Einarsson

1955    Gamla gatan (þjóðhátíðarlag). Ljóð Ási í Bæ

1955    Í bíl. Ljóð Örn Arnarsson

1957    Úteyjarvals- Er lagt er út til lunda. Oddgeir gerir síðan breytingar á laginu og gjörbreytti millikafla lagsins. Ási í Bæ gerði nýjan texta eftir lát Oddgeirs og síðan heitir lagið Ungi vinur og stendur þannig í nótnahefti Oddgeirs.

1959    Móðurstarfið. Ljóð Halldór Kolbeins. Sálmur. Lag og texti merkt 9. apríl 1959

1961    Sólbrúnir vangar (þjóðhátíðarlag). Ljóð Ási í Bæ

1962    Ég veit þú kemur (þjóðhátíðarlag). Ljóð Ási í Bæ

1963    Þá varstu ungur (þjóðhátíðarlag). Ljóð Ási í Bæ. (Þorsteinn Valdimarsson gerði nýtt ljóð við lagið eftir lát Oddgeirs og heitir lagið síðan “Kvöldlag” í nótnahefti OK)

1964    Þar sem fyrrum (þjóðhátíðarlag). Ljóð Ási í Bæ

1965    Ég vildi geta sungið þér (þjóðhátíðarlag). Fyrst nefnt Vögguvísa. ljóð Ási í Bæ